Fotbolti.net
10.05.23 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Burnley kaupir Beyer af Gladbach (Staðfest)

Burnley kaupir Beyer af Gladbach (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur gengið frá kaupum á Jordan Beyer frá Borussia Mönchengladbach.

Beyer hefur leikið með Burnley á láni frá Gladbach í vetur en hefur nú gert fjögurra ára samning við enska félagið.
Hann er varnarmaður sem á leiki fyrir öll yngri landslið Þýskalands. Hann byrjaði 29 af 46 deildarleikjum Burnley í vetur, var einu sinni ónotaður varamaður og kom einu sinni inn á sem varamaður. Hann kom til Burnley frá Gladbach fyrir leik liðsins gegn WBA í 8. umferð.

Hann var ekki í hópnum gegn WBA og var sjö sinnum í viðbót utan hóps, alltaf vegna meiðsla. Í 16 af leikjunum 29 sem hann byrjaði hélt Burnley hreinu. Burnley vann Championship deildina í vetur og verður í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

„Ég gæti ekki verið ánægðari! Lyfti bikarnum á mánudag, unnum deildina og nú orðinn leikmaður Burnley til frambúðar. Ég hef notið þess að vera hér síðan ég kom, líður eins og heima hjá mér. Ég elska að spila á Turf Moor og að fagna með stuðningsmönnunum," sagði Beyer.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.