Magni fær spænskan miðjumann (Staðfest)


Mynd: Magni/Facebook


Mynd: Magni/Facebook
Magni hefur fengið til sín spænskan miðjumann að nafni Carlos Felipe Martinez.
Carlos Felipe er 27 ára gamall miðjumaður sem getur leyst ýmsar aðrar stöður á vellinum.
Hann hefur reynslu úr 2. og 3. deildinni á Spáni. Hann lék síðast með Palmar CF sem leikur í 3. deild.
„Við bjóðum Carlos velkominn og hlökkum til að fylgjast með honum á víkinni í sumar," segir í tilkynningu frá Magna.
Magni hefur leik í 3. deildinni á laugardaginn þegar liðið heimsækir Reyni Sandgerði.



