Fotbolti.net
04.05.23 - 08:40
Ívan Guðjón Baldursson

Lykilmaður Njarðvíkur skiptir í 5. deildina (Staðfest)

Lykilmaður Njarðvíkur skiptir í 5. deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Már Andrésson mun ekki leika með Njarðvíkingum í sumar, heldur verður hann í 5. deildinni með Höfnum.

Njarðvík greinir frá þessu á Facebook en Ari Már var fastamaður í byrjunarliðinu í fyrra, er Njarðvík rúllaði upp 2. deildinni og fór upp í Lengjudeildina.

Ari er uppalinn Njarðvíkingur og er yngsti meistaraflokksleikmaður í sögu félagsins, þar sem hann spilaði sinn fyrsta leik aðeins 15 ára gamall árið 2012.

Ari er fæddur 1996 og á 220 keppnisleiki að baki fyrir Njarðvík í deild og bikar. Hann er næstleikjahæsti leikmaðurinn í sögu Njarðvíkur.

„Okkur hlakkar til að sjá Ara á pöllunum í sumar að styðja liðið, og hver veit nema við sjáum hann aftur í græna búningnum áður en um langt líður," segir meðal annars í færslu Njarðvíkur.

„Þangað til segjum við takk fyrir þitt framlag til Knattspyrnudeildar Njarðvíkur, Ari."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.