Fotbolti.net
03.05.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Landsliðskona frá Jamaíku í Grindavík (Staðfest)

Landsliðskona frá Jamaíku í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík/Facebook

Hertz

Grindavík hefur samið við varnarmanninn Dominique Bond-Flasza. Dominique er landsliðskona frá Jamaíku sem kemur til liðsins frá finnska félaginu Aland.

Hún er þegar byrjuð að spila með liðinu en hún var í byrjunarliðinu í gær þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Fram í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.

„Það er mjög gott að fá reynslumikinn leikmann í okkar raðir eftir að við misstum Momola í alvarleg meiðsli fyrr á tímabilinu. Dominique þekkir íslenskan fótbolta og mun klárlega styrkja okkar lið fyrir tímabilið sem hefst í kvöld,“ segir Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur.

Hún hefur reynslu úr íslenska boltanum en hún lék með Tindastól sumarið 2021 í efstu deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.