Joao Pedro í Brighton á metfé (Staðfest)

Joao Pedro.

Mynd: Getty Images

Joao Pedro.

Mynd: Getty Images
Brighton er búið að tilkynna það að félagið hafi gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Joao Pedro frá Watford.
Brighton kaupir hann á metfé, hann er dýrastur í sögu félagsins. Hann kostar Brighton um 30 milljónir punda.
Hann skrifar undir samning til fimm ára við Brighton og gengur í raðir félagsins þegar glugginn opnar í sumar.
Pedro, sem er 21 árs gamall, hefur leikið með Watford frá því í janúar 2020 en hann er núna á förum eftir tveggja og hálfs árs veru hjá félaginu.
Hann er þeirra markahæsti leikmaður á tímabilinu með ellefu mörk í 35 leikjum í Championship-deildinni.