Tvíburasystirin líka komin til Grindavíkur (Staðfest)


Mynd: Grindavík/Facebook


Mynd: Grindavík/Facebook

Grindavík hefur nælt í Jasmine Colbert en hún er bandarískur framherji. Hún mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Tvíburasystir hennar, Jada, gekk til liðs við félagið í mars síðastliðnum.
Rétt eins og Jada kemur Jasmine úr Iowa State háskólanum.
„Ég er mjög sáttur með að hafa getað fengið Jasmine til okkar. Hún mun klárlega styrkja okkar sóknarleik og eru spennandi tímar framundan hjá okkur,“ segir Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari meistaraflokks Grindavíkur.
„Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Jasmine velkomna til félagsins."
Grindavík hefur leik í Lengjudeildinni í kvöld þar sem liðið heimsækir Fram.



