Fotbolti.net
06.05.23 - 12:20
Aksentije Milisic

ÍH fær leikmenn fyrir átökin í 3. deild (Staðfest)

ÍH fær leikmenn fyrir átökin í 3. deild (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍH

ÍH hefur leik í 3. deild karla í dag en liðið fær þá Kormák/Hvöt í heimsókn. Flestir spáðu liðinu falli úr 3. deildinni í fyrra en liðið kom mörgum á óvart og náði að halda sér uppi.

Flottur árangur hjá liðinu í fyrra en ÍH hefur verið að styrkja sig fyrir komandi tímabil. Liðið var að fá fjóra leikmenn til sín núna rétt fyrir mót.

Felipe Obiang kemur til liðsins frá Einherja en hann hefur á m.a. spilað á Spáni og á Englandi. Þá kemur markvörðurinn Heiðar Máni Hermannsson einnig til liðsins en hann kemur frá FH. Heiðar er fæddur árið 2005.

Þá komu tveir leikmenn frá Haukum til ÍH en það eru tvíburarnir Arnór og Gísli Kristjánssynir. Þeir eiga 133 leiki á milli sín í ferlinum en þeir hófu vegferð sína hjá FH á sínum tíma en fóru svo yfir til Hauka.

Leikur ÍH og Kormáks/Hvatar hefst klukkan 14 á eftir í Skessunni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.