Sigurður Marinó í Magna (Staðfest)

Mynd: Magni

Mynd: Magni
Sigurður Marinó Kristjánsson er genginn í raðir Magna á láni frá Þór út þessa leiktíð.
Sigurður Marinó er 31 árs gamall og uppalinn í Þór en hann hefur aðeins spilað fyrir tvö félög á löngum ferli sínum.
Hann lék með Magna sumarið 2018 í Inkasso-deildinni og skoraði þá 3 mörk í 21 leik.
Sigurður á 264 leiki í tveimur efstu deildunum og gert 17 mörk. Hann kemur því með mikla reynslu inn í lið Magna sem spilar í 3. deildinni.
Magni spilar annan leik sinn í deildinni á föstudag en liðið fær þá Árbæinga í heimsókn. Magni tapaði fyrsta leik sínum, 2-1.