Mirza Hasesic og þrír aðrir í Þrótt V. (Staðfest)

Mirza Hasesic er kominn í Þrótt V.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mirza Hasesic er kominn í Þrótt V.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikmenn skrifuðu undir hjá Þrótti V. á dögunum en Mirza Hasesic gekk í raðir félagsins frá Grindavík og þá komu þeir Gunnar Óli Björgvinsson, Valur Þór Hákonarson og Einar Örn Harðarson einnig til félagsins.
Mirza er fæddur árið 1997 og uppalinn í Sindra en hann lék með Grindvíkingum í Lengjudeildinni árið 2021.
Hann lék þá 10 leiki og gerði 1 mark í deild- og bikar en hann mun spila með Þrótturum í 2. deildinni á komandi tímabili.
Gunnar Óli, sem er fæddur 1998, kemur þá frá ÍH. Hann kemur með ágætis reynslu inn í liðið. Hann hefur áður spilað fyrir ÍR, KH og Ægi og er með 99 leiki og 13 mörk í deild- og bikar.
Einar Örn kemur með Gunnari frá ÍH. Hann er fæddur árið 2011 og kemur úr akademíu FH. Hann lék einn leik í bikar fyrir FH-inga árið 2017 en fór síðan að láni til Fjölnis tveimur árum síðar. Á síðasta tímabili spilaði hann með ÍH í 3. deildinni.
Þróttarar fengu þá Val Þór Hákonarson á láni frá Keflavík. Valur er fæddur árið 2004 en hann spilaði fyrstu deildarleiki sína á síðustu leiktíð. Hann lék tvo leiki í neðri hluta Bestu deildarinnar.