Fotbolti.net
28.04.23 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Daníel Agnar spilar með Herði í sumar (Staðfest)

Daníel Agnar spilar með Herði í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Ísafirði var að fá mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í 5. deildinni þar sem Daníel Agnar Ásgeirsson mun spila með liðinu á láni frá Vestra.

Daníel Agnar er fæddur 1997 og hefur verið hjá Vestra í rúm fimm ár. Hann spilaði 15 leiki í Lengjudeildinni í fyrra og því nokkuð líklegt að hann verði meðal gæðameiri leikmanna fimmtu deildarinnar í sumar.

Vestri náði í 28 stig úr 22 umferðum í fyrra og endaði tíu stigum fyrir ofan fallsæti.

Hörður fékk 15 stig úr 14 umferðum í 4. deildinni í fyrra, sem var ekki nægilega góður árangur til að halda sér uppi eftir að breytt var um fyrirkomulag og nýrri deild bætt við.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.