Garnacho búinn að gera nýjan samning (Staðfest)

Alejandro Garnacho.

Mynd: Getty Images

Alejandro Garnacho.

Mynd: Getty Images
Alejandro Garnacho er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Manchester United.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

Nýr samningur þessa efnilega Argentínumanns gildir til ársins 2028 en hann er gríðarlega ánægður með að hafa skrifað undir.
„Þetta er ótrúlegt félag. Mig dreymdi alltaf um að spila á Old Trafford. Ég er mjög stoltur," sagði Garnacho eftir að hann skrifaði undir samninginn.
Garnacho, sem er aðeins 18 ára gamall, kom gríðarlega sterkur inn í lið Man Utd fyrr á þessu tímabili en hann hefur upp á síðkastið verið að glíma við meiðsli.
Það er vonandi fyrir stuðningsmenn Man Utd að hann mæti enn sterkari til leiks á næsta tímabili.

#FridayFeeling = secured ????
— Manchester United (@ManUtd) April 28, 2023
?? @AGarnacho7 #MUFC pic.twitter.com/DAVe2oF9uq