Fotbolti.net
01.05.23 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Bordalas tekinn við Getafe á ný (Staðfest)

Bordalas tekinn við Getafe á ný (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski þjálfarinn Jose Bordalas, sem hefur verið samningslaus síðan í júní, er tekinn við Getafe á nýjan leik í spænska boltanum.

Bordalas gerði frábæra huti við stjórnvölinn hjá Getafe frá 2016 til 2021 og var meðal annars orðaður við stjórastarfið hjá Tottenham áður en hann var ráðinn til Valencia.

Hann stýrði Valencia tímabilið 2021-22 og kom liðinu í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins. Valencia endaði í níunda sæti spænsku deildarinnar með 48 stig en Bordalas var rekinn eftir tímabilið, nokkrum dögum eftir að forseti félagsins Anil Murthy var rekinn úr starfi.

Bordalas, sem hefur meðal annars stýrt Alaves og Elche á þjálfaraferlinum en einnig Benidorm og Alicante, á erfitt verk fyrir höndum sér. Hann tekur við Getafe þar sem liðið er í fallsæti spænsku deildarinnar, þó aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti með sjö leiki eftir óspilaða.

Hans fyrsti leikur við stjórnvölinn var fallbaráttuslagur gegn Espanyol í gær, sem tapaðist 1-0. 

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Alaves000
1Real Sociedad2+46
2Athletic000
2Barcelona2+46
3Atletico Madrid2+44
3Atletico Madrid000
4Girona2+14
4Barcelona000
5Betis000
5Levante2+14
6Celta000
6Real Madrid1+33
7Deportivo000
7Eibar1+13
8Leganes1+13
8Elche000
9Espanyol000
9Valencia1+13
10Getafe000
10Betis2-13
11Espanyol101
11Levante000
12Malaga000
12Sevilla101
13Osasuna000
13Athletic101
14Racing Santander000
14Getafe101
15Deportivo2-31
15Rayo Vallecano000
16Celta2-20
16Real Madrid000
17Malaga2-20
17Mallorca38-1042
17Real Sociedad000
18Sevilla000
18Alaves2-30
19Villarreal2-40
19Valencia000
19Girona38-1641
20Villarreal000
20Oviedo38-3429
20Las Palmas2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.