Fotbolti.net
10.05.23 - 20:13
Brynjar Ingi Erluson

Valérien Ismael tekur við Watford (Staðfest)

Valérien Ismael tekur við Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Valérien Ismaël er nýr stjóri Watford í ensku B-deildinni en hann skrifaði undir samning við félagið í dag.
Rob Edwards hóf tímabilið sem stjórii liðsins en var rekinn í september og tók Slaven Bilic við.

Hann entist aðeins lengur en Edwards en þó ekki mikið lengur því hann var látinn fara í mars eftir slakan árangur.

Chris Wilder var ráðinn út tímabilið en tókst ekki að koma liðinu í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Hann yfirgaf félagið eftir síðasta leik tímabilsins og hefur Ismaël nú verið ráðinn til frambúðar.

Ismaël hefur áður þjálfað Besiktas, WBA, Barnsley, LASK, Apollon Smyrnis, Nürnberg og Wolfsburg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.