Pólskur miðjumaður í Reyni S. (Staðfest)

Reynir Sandgerði er búinn að krækja sér í miðjumanninn framsækna Leonard Zmarzlik á tveggja ára samningi.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24452 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Reynir Sandgerði er búinn að krækja sér í miðjumanninn framsækna Leonard Zmarzlik á tveggja ára samningi.

Augnablik var að bæta tveimur efnilegum leikmönnum við hópinn hjá sér fyrir komandi átök í 3. deildinni. Báðir eru þeir ungir Blikar fæddir 2005 sem eiga framtíðina fyrir sér.

Grótta er búin að semja við tvo öfluga leikmenn frá Bandaríkjunum. Aðra þeirra kannast Seltirningar vel við eftir síðustu leiktíð, þegar Ariela Lewis skoraði 12 mörk í 15 deildarleikjum í 2. deildinni.

HK er búið að semja við bandarískan miðjumann út tímabilið og er þar um að ræða gríðarlega reyndan leikmann.

Nottingham Forest er meðal félaga sem hefur reynt að krækja í Brenner að undanförnu en brasilíski sóknarmaðurinn er á leið til Udinese á Ítalíu.

Við sögðum frá því á þriðjudagskvöld að Valur hefði lánað Bryndísi Eiríksdóttur til HK út tímabilið.Félagaskiptaglugginn lokaði í gær, HK sagði frá komu Bryndísar á samfélagsmiðlum í dag og á sama tíma var Hildur Lilja Ágústsdóttir kynnt. Bryndís er fædd árið 2005 og hefur bankað á dyrnar hjá U19 landsliðinu þar sem hún lék tvo leiki í fyrra. „Hún er miðjumaður að upplagi en getur leyst nánast allar stöður á vellinum," segir í færslu HK.
Oddur Ingi Bjarnason hefur fengið félagaskipti úr KR yfir í Mídas en þetta eru áhugaverðar fréttir.
Víðir fékk öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í 3. deildinni þegar Helgi Þór Jónsson gekk í raðir félagsins á láni frá Keflavík í gær. Á samfélagsmiðlum er sagt frá því að Helgi sé kominn heim í Víði. Hann lék með sameiginlegu liði Víðis og Reynis í yngri flokkum og lék með meistaraflokksliði félagsins tímabilið 2013-2017 og aftur 2019.
Tumi Þorvarsson gerði í gær lánssamning við Hauka en hann kemur til félagsins frá HK.
Markvörðurinn Sindri Snær Vilhjálmsson hefur fengið félagaskipti úr Árbæ og yfir í FH en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
FH hefur fengið öflugan liðsstyrk inn í tímabilið en þær Harpa Helgadóttir og Margrét Brynja Kristinsdóttur eru mættar á láni frá Breiðabliki.
KR hefur fengið til sín unglingalandsliðsmanninn Lúkas Magna Magnason frá Breiðabliki.
Sheffield Utd 2 - 0 West Brom 1-0 Sander Berge ('58 ) 2-0 Anel Ahmedhodzic ('76 )
Eyþór Aron Wöhler er genginn í raðir HK á láni frá Breiðabliki. Hann er kominn með leikheimild og má spila með HK þegar liðið spilar gegn Fylki á heimavelli í 4. umferð Bestu deildarinnar á laugardag. Eyþór er 21 árs framherji sem gekk í raðir Breiðabliks frá ÍA eftir að hafa vakið mikla athygli fyrir sína frammistöðu á síðasta tímabili.
Sigrún Ella Einarsdóttir er mætt aftur í Stjörnuna eftir að hafa spilað síðustu tvö tímabil með FH.
Kýpverska landsliðskonan Marinella Panayiotou er gengin í raðir ÍBV og mun spila með liðinu út þetta tímabil.
Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við uppeldisfélag sitt, ÍA, og mun spila með liðinu á komandi tímabili eftir að hafa spilað erlendis síðustu fimmtán ár.
Máni Austmann Hilmarsson er genginn í raðir Fjölnis og hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá FH þar sem hann átti tæplega sjö mánuði eftir af samningi sínum. Það hefur verið líklegt í nokkra daga að Máni væri á förum frá FH og Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, svo gott sem staðfesti það við Fótbolta.net í gær. Nú er ljóst að hann spilar í Lengjudeildinni í sumar.
Pálmi Rafn Pálmason hefur fengið félagaskipti í Völsung og getur því spilað með liðinu í 2. deild í sumar. Pálmi er þaulreyndur leikmaður, uppalinn á Húsavík og kannast því ágætlega við sig í Völsungi. Pálmi lagði skóna á hilluna í fyrra eftir sitt áttunda tímabil með KR.
Varnarmaðurinn Loic Ondo er búinn að fá leikheimild með Vestra og getur hann því spilað með liðinu í sumar.