Fotbolti.net
27.04.23 - 15:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

HK fékk tvær mjög efnilegar á láni (Staðfest)

Hildur Lilja

Hildur Lilja

Canon

Mynd: HK

Hertz
Við sögðum frá því á þriðjudagskvöld að Valur hefði lánað Bryndísi Eiríksdóttur til HK út tímabilið.Félagaskiptaglugginn lokaði í gær, HK sagði frá komu Bryndísar á samfélagsmiðlum í dag og á sama tíma var Hildur Lilja Ágústsdóttir kynnt.

Bryndís er fædd árið 2005 og hefur bankað á dyrnar hjá U19 landsliðinu þar sem hún lék tvo leiki í fyrra. „Hún er miðjumaður að upplagi en getur leyst nánast allar stöður á vellinum," segir í færslu HK.
Hildur Lilja er fædd árið 2005 og kemur á láni frá Breiðabliki. „Hún er miðvörður eða varnarsinnaður miðjumaður, á að baki landsleiki fyrir öll yngri landslið Íslands og þykir gríðarlegt efni." Hún er dóttir Ágústs Gylfasonar sem er þjálfari karlaliðs Stjörnunnar.

HK ætlar sér stóra hluti í Lengjudeildinni í sumar, stefnan er sett upp um deild.

Fyrsti leikur tímabilsins er í kvöld þegar liðið mætir Fram á útivelli í Mjólkurbikarnum.
Bryndís Eiríksdóttir

Bryndís Eiríksdóttir

Canon

Mynd: HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.