Fotbolti.net
26.04.23 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Loic Ondo í Vestra (Staðfest)

Ondo í leik með Kórdrengjum.

Ondo í leik með Kórdrengjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Varnarmaðurinn Loic Ondo er búinn að fá leikheimild með Vestra og getur hann því spilað með liðinu í sumar.
Ondo er sterkur miðvörður sem hefur leikið á Íslandi í mörg ár. Hann spilaði fyrst hér á landi með Grindavík í efstu deild árið 2010 og síðan þá hefur hann komið víða við.

Hann hefur áður leikið fyrir vestan þar sem hann spilaði með BÍ/Bolungarvík (núna Vestri) sumarið 2011 og svo aftur frá 2013 til ársins 2015.

Ondo hefur einnig spilað með Fjarðabyggð, Gróttu, Aftureldingu og Kórdrengjum hér á landi.

Hann lék með Kórdrengjum síðasta sumar undir stjórn Davíðs Smára Lamude, sem er núna þjálfari Vestra. Þeir þekkjast því mjög vel.

Vestri hefur leik í Lengjudeildinni þann 6. maí næstkomandi er þeir mæta Þór á Akureyri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.