Oddur setur skóna langleiðina upp á hillu - Skiptir í Mídas (Staðfest)

Oddur Ingi Bjarnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oddur Ingi Bjarnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oddur Ingi Bjarnason hefur fengið félagaskipti úr KR yfir í Mídas en þetta eru áhugaverðar fréttir.
Oddur Ingi, sem er 22 ára gamall kantmaður, á að baki leiki í Bestu deildinni með KR. Hann spilaði tvo leiki með Vesturbæjarstórveldinu í efstu deild árið 2021.
Oddur steig sín fyrstu skref í meistaraflokki árið 2019 þegar hann skoraði sex mörk í 13 deildarleikjum með KV í 3. deild. Hann lék svo mjög vel með Grindavík í næst efstu deild árið eftir og skoraði sjö mörk í 17 leikjum.
Í fyrra spilaði hann átta leiki með KV í Lengjudeildinni en hann hefur verið að glíma við erfið höfuðmeiðsli eftir að hafa fengið heilahristing. Líklegt er að skórnir séu komnir langleiðina upp á hillu en hann skipti yfir í Mídas þar sem margir félagar hans eru þar. Hann gæti spilað mögulega einn eða tvo leiki með þeim í sumar ef honum líður nægilega vel til að gera það.
Mídas og Berserkir munu senda sameiginlegt lið til leiks í 5. deildina í sumar.
Sjá einnig:
Rúnar ráðlagði Oddi að hætta í marki og hann varð markahæstur í KR