Helgi Þór heim í Víði (Staðfest)

Mynd: Víðir

Mynd: Víðir
Víðir fékk öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í 3. deildinni þegar Helgi Þór Jónsson gekk í raðir félagsins á láni frá Keflavík í gær.
Á samfélagsmiðlum er sagt frá því að Helgi sé kominn heim í Víði. Hann lék með sameiginlegu liði Víðis og Reynis í yngri flokkum og lék með meistaraflokksliði félagsins tímabilið 2013-2017 og aftur 2019.

„Helga þarf vart að kynna fyrir stuðningsfólki Víðis en hann er uppalinn í Garðinum og á að baki 103 leiki í Víðistreyjunni og hefur hann skorað í þeim 47 mörk. Við erum virkilega ánægð með að fá þennan góða dreng heim og hlökkum til að sjá Jónsvélina malla á Nesfisk-vellinum í sumar," segir í tilkynningu Víðis.
Helgi er 29 ára sóknarmaður sem hefur alls skorað 62 mörk í 192 KSÍ leikjum. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í þrettán leikjum með Keflavík í Bestu deildinni og skoraði eitt mark.
Helgi er 29 ára sóknarmaður sem hefur alls skorað 62 mörk í 192 KSÍ leikjum. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í þrettán leikjum með Keflavík í Bestu deildinni og skoraði eitt mark.