Fotbolti.net
28.04.23 - 08:20
Ívan Guðjón Baldursson

Grótta semur við tvær bandarískar (Staðfest)

Grótta semur við tvær bandarískar (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta / Eyjólfur Garðarsson

Hertz

Grótta er búin að semja við tvo öfluga leikmenn frá Bandaríkjunum. Aðra þeirra kannast Seltirningar vel við eftir síðustu leiktíð, þegar Ariela Lewis skoraði 12 mörk í 15 deildarleikjum í 2. deildinni.

Ariela, betur þekkt sem Ari, er öflugur framherji sem er fædd árið 1995. Hún er vön íslenskum aðstæðum eftir að hafa alist upp í Alaska og er talin vera ein af þremur atvinnukonum í fótbolta frá fylkinu.

Það verður spennandi að fylgjast með Ari í Lengjudeildinni, þar sem Grótta reynir fyrir sér eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni.

Hannah Abraham er þá einnig búin að skrifa undir samning á Seltjarnarnesi. Hún er fædd 1996 og er fjölhæfur sóknarmaður sem lék síðast fyrir West Virginia í Bandaríkjunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.