Fotbolti.net
26.04.23 - 23:38
Brynjar Ingi Erluson

KR fær unglingalandsliðsmann frá Breiðabliki (Staðfest)

KR fær unglingalandsliðsmann frá Breiðabliki (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

KR hefur fengið til sín unglingalandsliðsmanninn Lúkas Magna Magnason frá Breiðabliki.
Lúkas er fæddur árið 2005 og uppalinn hjá Blikum en hann kom við sögu hjá liðinu í Lengjubikarnum á síðasta ári.

Miðvörðurinn þykir gríðarlegt efni og á að baki 2 landsleiki fyrir U17 ára landsliðið en hann er nú genginn til liðs við KR.

Hann fékk félagaskipti sín í gegn í kvöld og er væntanlega að horfa á það að fá mínútur með KR-ingum í sumar.

Samningur Lúkasar hjá Blikum átti að renna út í október og hafa því KR-ingar væntanlega fengið hann á fínasta verði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.