Fotbolti.net
26.04.23 - 19:01
Brynjar Ingi Erluson

Björn Bergmann í ÍA (Staðfest)

Björn Bergmann er kominn heim í ÍA

Björn Bergmann er kominn heim í ÍA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við uppeldisfélag sitt, ÍA, og mun spila með liðinu á komandi tímabili eftir að hafa spilað erlendis síðustu fimmtán ár.
Skagamaðurinn var talinn einn sá efnilegasti á Íslandi þegar hann fór frá ÍA árið 2008 og samdi við Lilleström í Noregi.

Síðan þá hefur hann leikið með félögum á borð við Wolves, FCK, APOEL, Rostov.

Hann hefur þrisvar sinnum verið á mála hjá Molde í Noregi en hann varð samningslaus eftir síðustu leiktíð. Meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn síðustu ár en hann er nú kominn heim og mun spila með ÍA í sumar.

Björn, sem er 32 ára, á að baki 32 leiki og 7 mörk í deild- og bikar fyrir ÍA en þetta verður gríðarlegur styrkur fyrir liðið í sumar ef hann helst heill. Þá á hann 17 landsleiki og 1 mark fyrir A-landsliðið.

ÍA féll úr Bestu deildinni á síðasta ári en mun nú taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni. Fyrsti leikur tímabilsins er gegn Grindavík þann 5. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.