Sindri Snær úr Árbæ í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Sindri Snær Vilhjálmsson hefur fengið félagaskipti úr Árbæ og yfir í FH en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
Sindri er fæddur árið 2002 og uppalinn í FH en hann skipti yfir í Breiðablik fyrir sex árum.
Hann lék með yngri flokkum Breiðabliks ásamt því að spila fyrir Augnablik í 3. deildinni.
Árið 2021 lék hann með Kórdrengjum í Lengjudeildinni en skipti yfir í Árbæ í síðasta mánuði. Hann staldraði ekki lengi við þar því nú er hann kominn aftur í uppeldisfélagið, FH.
Sindri Kristinn Ólafsson er aðalmarkvörður FH og hefur þá Daði Freyr Arnarsson verið honum til halds og trausts.