Breiðablik lánar Hörpu og Margréti í FH (Staðfest)

Harpa Helgadóttir í leik með Augnabliki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Harpa Helgadóttir í leik með Augnabliki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur fengið öflugan liðsstyrk inn í tímabilið en þær Harpa Helgadóttir og Margrét Brynja Kristinsdóttur eru mættar á láni frá Breiðabliki.
Harpa er fædd árið 2006 en er komin með ágætis reynslu þrátt fyrir ungan aldur.
Síðustu tvö tímabil hefur hún verið á láni hjá Augnabliki, venslafélagi Breiðabliks og spilað 31 leik og gert 4 mörk.
Hún var í leikmannahópi Breiðabliks í 1-0 tapinu gegn Val í 1. umferð Bestu deildarinnar í gær en er nú gengin til liðs við FH á láni út tímabiiið.
Margrét Brynja, sem er jafngömul Hörpu, mun einnig spila á láni hjá FH, en hún lék með Hörpu hjá Augnabliki. Þar hefur hún spilað síðustu þrjú tímabil. Hún á þá 9 leiki í deild- og bikar fyrir Breiðablik síðustu tvö tímabil.
Báðar hafa þær spilað með unglingalandsliðum Íslands en Harpa á 19 leiki og 1 mark fyrir U16 og U17 ára landsliðin en Margrét 23 leiki og 8 mörk.
Margrét var einnig í hópnum hjá Blikum gegn Val í gær.

Margrét Brynja Kristinsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson