Fotbolti.net
27.04.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Köngulóarmaðurinn lánaður í Hauka (Staðfest)

Köngulóarmaðurinn lánaður í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tumi Þorvarsson gerði í gær lánssamning við Hauka en hann kemur til félagsins frá HK.
Þessi 18 ára gamli leikmaður spilaði stórt hlutverk í sigri HK á Breiðabliki í 1. umferð Bestu deildarinnar.

Hann kom inná sem varamaður seint í leiknum og átti tæklinguna sem bjó til sigurmarkið í uppbótartíma.

Tumi, sem er kallaður Köngulóarmaðurinn, er nú genginn í raðir Hauka á láni en hann mun því spila á Ásvöllum í sumar.

Haukar spila í 2. deildinni en fyrsti leikur liðsins er gegn Þrótti V. þann 5. maí.

Sjá einnig:
Köngulóarmaðurinn í HK átti mögulega stærsta augnablik leiksins
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.