Jónþór Atli og Tumi Fannar í Augnablik (Staðfest)

Mynd: Augnablik Twitter

Mynd: Augnablik twitter

Mynd: Augnablik Twitter
Augnablik var að bæta tveimur efnilegum leikmönnum við hópinn hjá sér fyrir komandi átök í 3. deildinni. Báðir eru þeir ungir Blikar fæddir 2005 sem eiga framtíðina fyrir sér.
Annar þeirra er Tumi Fannar Gunnarsson, sem framlengdi samning sinn við Breiðablik til 2025 áður en hann var lánaður til Augnabliks.
Tumi Fannar spilar ýmist sem kantmaður, framherji eða sóknartengiliður. Hann er leikinn með boltann og á einn leik að baki fyrir meistaraflokk Breiðabliks.
Hinn er Jónþór Atli Ingólfsson sem er öskufljótur hægri bakvörður með gríðarlega mikið þol, mikinn sprengikraft og góðan hægri fót.
Það verður áhugavert að fylgjast með þessum ungu og spennandi leikmönnum taka sín fyrstu skref í fullorðinsboltanum.
Augnablik endaði í 2.sæti í sínum riðli í Lengjubikarnum og mun mæta öflugu liði Kára í fyrsta leik sínum í 3. deildinni þann 6. maí í Akraneshöllinni.
Sjá einnig: Augnablik fær leikmann sem lék í Bestu deildinni síðasta sumar (Staðfest)