Fotbolti.net
26.04.23 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson

Sigrún Ella aftur í Stjörnuna (Staðfest)

Sigrún Ella aftur í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Sigrún Ella Einarsdóttir er mætt aftur í Stjörnuna eftir að hafa spilað síðustu tvö tímabil með FH.
Sigrún, sem verður 31 árs gömul í næsta mánuði, er uppalin í FH en gekk í raðir Stjörnunnar árið 2014.

Hún lék sex tímabil með liðinu áður en hún fór aftur í FH árið 2021 og lék þá með liðinu í Lengjudeildinni.

Sigrún á 174 leiki og 65 mörk í tveimur efstu deildunum ásamt því að hafa spilað 24 bikarleiki og gert 12 mörk.

Í dag fékk hún félagaskipti aftur yfir í Stjörnuna en það er alveg ljóst að hún kemur með mikla reynslu og mörk inn í liðið.

Stjarnan er að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld en liðið er að tapa fyrir Þór/KA, 1-0, þegar þetta er skrifað. Sigrún var ekki með leikheimild í kvöld en verður klár fyrir næsta leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.