Pólskur miðjumaður í Reyni S. (Staðfest)


Mynd: Reynir S.


Mynd: Reynir S.
Reynir Sandgerði er búinn að krækja sér í miðjumanninn framsækna Leonard Zmarzlik á tveggja ára samningi.
Leonard er aðeins 20 ára gamall og kemur til Reynis úr röðum Pniowek Pawlowice í pólsku D-deildinni.
Það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikmanni reyna fyrir sér í 3. deildinni eftir að Reynir féll úr 2. deild í fyrra.
Reynismenn voru í 2. deild í tvö ár áður en þeir féllu í fyrra. Markmið Sandgerðinga er að fara beint aftur upp með sem skemmstum hætti.



