Emily Sands til HK (Staðfest) - Gríðarlegur liðsstyrkur


Mynd: HK


Mynd: HK

HK er búið að semja við bandarískan miðjumann út tímabilið og er þar um að ræða gríðarlega reyndan leikmann.
Emily Sands er fædd 1998 og hefur meðal annars leikið fyrir Boavista FC í Portúgal og AaB í Danmörku, auk þess að hafa komið við í franska og finnska boltanum.
HK stefnir upp í Bestu deildina fyrir næstu leiktíð og gæti hin ótrúlega fjölhæfa Emily reynst gríðarlega mikilvæg í þeirri baráttu. Þó hún sé miðjumaður að upplagi getur hún einnig spilað sem framherji eða miðvörður.
HK endaði í fjórða sæti Lengjudeildarinnar í fyrra, með 34 stig úr 18 leikjum.
„Óhætt er að segja hér sé á ferðinni gríðarlegur liðsstyrkur fyrir kvennalið okkar HK-inga," segir meðal annars í tilkynningu frá HK.
Emily spilaði sinn fyrsta leik fyrir HK í gærkvöldi, þegar liðið tapaði fyrir Fram í Mjólkurbikarnum.



