Máni Austmann í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni Austmann Hilmarsson er genginn í raðir Fjölnis og hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá FH þar sem hann átti tæplega sjö mánuði eftir af samningi sínum.
Það hefur verið líklegt í nokkra daga að Máni væri á förum frá FH og Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, svo gott sem staðfesti það við Fótbolta.net í gær. Nú er ljóst að hann spilar í Lengjudeildinni í sumar.

„Máni sem fæddur er 1998 kemur til okkar frá FH og hefur víðtæka reynslu úr heimi knattspyrnunnar. Uppalinn í Garðabæ, samtals 125 KSÍ leikir og 18 mörk, þar af eru tæpir 50 leikir í efstu deild. Yfir 20 leikir með yngri landsliðum Íslands og var m.a. áður í akademíu FCK í Danmörku. Máni er fjölhæfur og klókur leikmaður sem getur spilað allar stöður í sókninni, úti á kantinum og inni á miðjunni," segir í tilkynningu Fjölnis.
Máni gekk í raðir FH fyrir síðasta tímabil. Hann var ekki búinn að koma við sögu í fyrstu fjórum leikjum liðsins á þessu tímabili. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 20 leikjum í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk.
Kynntu þér Mána Austmann:
Mættu í afmælið hjá dreng sem hafði verið lagður í einelti
Hin hliðin - Máni Austmann (FH)
„Svo hringdi FH, mér leist vel á það og tók sénsinn"
Yfirgaf FCK en var ekki tilbúinn - Fann sig loksins hjá Leikni