Fotbolti.net
27.04.23 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson

Forest missir af Brenner - Fer til Udinese (Staðfest)

Forest missir af Brenner - Fer til Udinese (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest er meðal félaga sem hefur reynt að krækja í Brenner að undanförnu en brasilíski sóknarmaðurinn er á leið til Udinese á Ítalíu.

Hann mun ganga í raðir félagsins þegar félagsskiptaglugginn opnar í sumar en Udinese er þó búið að staðfesta kaup á leikmanninum.

Udinese borgar 10 milljónir evra fyrir Brenner auk árangurstengdra aukagreiðslna og prósentu af hagnaði næst þegar leikmaðurinn verður seldur.

Brenner hefur raðað inn mörkunum með FC Cincinnati í bandarísku MLS deildinni og hafnaði félagið kauptilboðum frá Udinese og Forest í leikmanninn í janúar.

Þegar Brenner var yngri þótti hann gífurlega mikið efni. Þegar hann gerði 4 mörk í 11 leikjum með U17 landsliði Brasilíu reyndi Arsenal að krækja í hann frá Sao Paulo en án árangurs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.