Loftus-Cheek í AC Milan (Staðfest)
Miðjumaðurinn Ruben Loftus-Cheek er formlega genginn í raðir AC Milan á Ítalíu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Miðjumaðurinn Ruben Loftus-Cheek er formlega genginn í raðir AC Milan á Ítalíu.
Fabio Carvalho hefur verið lánaður frá Liverpool til RB Leipzig í Þýskalandi í eitt tímabil. Þýska félagið var að staðfesta þessi félagaskipti.
Robbie Fowler, fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, er nýr þjálfari Al Qadsiah í B-deildinni á Sádi-Arabíu.
Ítalski þjálfarinn Alberto Aquilani var í dag staðfestur sem nýr þjálfari Pisa í ítölsku B-deildinni.
Írski bakvörðurinn Seamus Coleman framlengdi í dag samning sinn við Everton til 2024.
Cloe Lacasse er formlega gengin í raðir Arsenal. Cloe raðaði inn mörkunum með ÍBV hér á landi áður en hún skipti yfir til Benfica árið 2019. Hún var einn öflugasti leikmaður efstu deildar kvenna áður en hún fór út. Á þeim tíma sem hún spilaði hérna þá fékk hún íslenskan ríkisborgararétt en hún gat ekki spilað með íslenska landsliðinu þar sem hún uppfyllti ekki kröfur FIFA til þess að spila með Íslandi. Í fyrra byrjaði hún svo að spila með landsliði Kanada. Hún er í kanadíska landsliðshópnum sem er að fara að keppa á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Grindavík hefur fengið Söndru Sigurðardóttir á neyðarláni frá Val en þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavík í kvöld.
Tottenham Hotspur hefur gengið frá kaupum á James Maddison frá Leicester.
Arsenal hefur gengið frá kaupum á þýska landsliðsmanninum Kai Havertz en hann kemur frá nágrönnum þeirra í Chelsea. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arsenal í kvöld.
Markvörðurinn Edouard Mendy er búinn að fá félagaskipti yfir til Sádi-Arabíu. Hann er genginn í raðir Al-Ahli. Mendy hittir þar fyrir fyrrum liðsfélaga sinn í Chelsea, Kalidou Koulibaly, sem fékk félagaskipti þangað fyrir stuttu.
Rhys Williams varnarmaður Liverpool fer til Aberdeen á eins árs lánssamningi. Þessi 22 ára leikmaður hefur verið hjá Liverpool frá því að hann var barn og hefur hefur spilað nítján aðalliðsleiki. Þeir komu allir 2020-21 þegar hann hjálpaði liðinu, sem var í miklum meiðslavandræðum, að ná Meistaradeildarsæti.
<p>Andrea Pirlo hefur verið ráðinn stjóri Sampdoria og gerir tveggja ára samning við félagið.</p>
Andriy Yarmolenko er snúinn aftur til úkraínska félagsins Dynamo Kiev eftir sex ára fjarveru. Yarmolenko er 33 ára kantmaður sem ber fyrirliðabandið hjá úkraínska landsliðinu. Hann lék með Dynamo Kiev á árunum 2008-2017 og vakti athygli Dortmund sem keypti hann. Næsta stopp var West Ham þar sem hann var í fjögur ár og í fyrra skipti hann yfir til Al Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Manchester City hefur staðfest komu Mateo Kovacic til félagsins en það kaupir hann frá Chelsea. Króatíski landsliðsmaðurinn tekur treyju númer 8 hjá City og tekur við því númeri af Ilkay Gundogan sem samdi við Barcelona á dögunum. Kovacic er 29 ára gamall miðjumaður sem skrifar undir fjögurra ára samning við ensku meistarana.
Tottenham hefur fengið Guglielmo Vicario í sínar raðir frá ítalska félaginu Empoli. Markvörðurinn skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.
Finnski sóknarmaðurinn Teemu Pukki er mættur í MLS-deildina í Norður-Ameríku en hann er búinn að skrifa undir samning við Minnesota United.
Miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir hefur skrifað undir samning við Val og kemur til félagsins frá Inter á Ítalíu. Hlíðarendafélagið hefur staðfest þetta.
Aron Elís Þrándarson er genginn í raðir Víkings á nýjan leik en hann hélt í atvinnumennsku eftir tímabilið 2014 hjá uppeldisfélaginu. Hann kemur nú heim eftir að hafa leikið með Álasundi í Noregi og OB í Danmörku. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Víking, gildir út tímabilið 2027.
<p>Reading FC er búið að staðfesta samkomulag við spænska þjálfarann Rubén Sellés. Hann á aðeins eftir að fá samþykkt atvinnuleyfi.</p>
Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska félagsins Sönderjyske. Frá þessu greinir danska félagið í dag. Grindvíkingurinn kemur frá pólska félaginu Slask Wroclaw. Hann var á <i>Transfermarkt</i> skráður með samning til 2025 við pólska félagið.