Anna Björk í Val (Staðfest)

Anna Björk er komin í Valstreyjuna.

Mynd: Valur

Anna Björk er komin í Valstreyjuna.

Mynd: Valur

Miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir hefur skrifað undir samning við Val og kemur til félagsins frá Inter á Ítalíu. Hlíðarendafélagið hefur staðfest þetta.
Hún hefur spilað 143 leiki í efstu deild á Íslandi, er alin upp í KR, lék lengst af með Stjörnunni en hefur einnig spilað með Selfossi. Erlendis hefur hún einnig leikið með Örebro og Limhamn Bunkeflo í Svíþjóð, PSV í Hollandi og Le Havre í Frakklandi. Anna Björk hefur leikið 44 landsleiki og 14 yngri landsleiki.
„Við bjóðum Önnu Björk velkomna á Hlíðarenda og hlökkum til þess að sjá hana á vellinum!" segir í yfirlýsingu Vals.
Anna Björk, sem er 33 ára, hafði verið orðuð við Val og Pétur Pétursson þjálfari liðsins viðurkenndi í viðtali að áhugi væri til staðar.
Valur er í öðru sæti Bestu deildar kvenna, með jafnmörg stig og topplið Breiðabliks en lakari markatölu.