Fotbolti.net
27.06.23 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pukki til Minnesota (Staðfest)

Teemu Pukki.

Teemu Pukki.

Canon

Mynd: Getty Images

Finnski sóknarmaðurinn Teemu Pukki er mættur í MLS-deildina í Norður-Ameríku en hann er búinn að skrifa undir samning við Minnesota United.
Pukki skrifar undir samning við Minnesota sem gildir til ársins 2025.

„Við erum búnir að fá markaskorarann sem við höfum þarfnast. Hann hefur sannað það að hann er mikill markaskorari," segir Adrian Heath, þjálfari Minnesota.

Pukki gengur í raðir Minnesota frá Norwich þar sem hann hefur leikið undanfarin fimm ár.

Hann hefur reynst frábær markaskorari fyrir Norwich, og þá sérstaklega í næst efstu deild á Englandi.

Pukki gerði 30 mörk í 46 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu og hjálpaði Norwich þá að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Hann hjálpaði Norwich aftur upp fyrir tveimur árum með því að skora 26 mörk í 42 leikjum.

Núna tekst þessi öflugi markaskorari á við nýja áskorun í Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.