Fotbolti.net
30.06.23 - 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Loftus-Cheek í AC Milan (Staðfest)

Ruben Loftus-Cheek.

Ruben Loftus-Cheek.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Ruben Loftus-Cheek er formlega genginn í raðir AC Milan á Ítalíu.
Hann er búinn að vera í 19 ár hjá Chelsea og núna er kominn tími á nýja áskorun í nýju landi.

Það er talið að kaupverðið sé um 18,5 milljónir punda fyrir þennan 27 ára gamla miðjumann sem á tíu A-landsleiki að baki fyrir England.

Hlutverk Loftus-Cheek verður væntanlega að fylla skarð Sandro Tonalo sem er að ganga í raðir Newcastle fyrir um 70 milljónir evra; upphæð sem gæti hækkað um 10 milljónir eftir ákvæðum.

Chelsea og Milan eru einnig í viðræðum við Christian Pulisic en Milan vill ekki eyða meiru en 15 milljónir evra í hann á meðan Chelsea er með 25 milljóna punda verðmiða á honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.