Daníel Leó til Sönderjyske (Staðfest) - „Félagaskipti sem við getum verið virkilega stolt af"

Daníel á landsliðsæfingu fyrr í þessum mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska félagsins Sönderjyske. Frá þessu greinir danska félagið í dag. Grindvíkingurinn kemur frá pólska félaginu Slask Wroclaw. Hann var á Transfermarkt skráður með samning til 2025 við pólska félagið.
Daníel er örvfættur varnarmaður sem hefur verið í íslenska landsliðinu undanfarin tvö ár. Daníel á að baki þrettán landsleiki og hefur verið í öllum hópum í keppnisleikjum frá því í október 2021. Þrettándi landsleikurinn kom gegn Bosníu í mars.
Í vetur var hann í stóru hlutverki hjá Wroclaw sem endaði í 15. sæti pólsku deildarinnar, stigi fyrir ofan fallsæti.
Daníel skrifar undir samning fram á sumarið 2027. Sönderjyske er í dönsku B-deildinni, félagið ætlaði sér að fara upp í vetur en mistókst það markmið sitt. Hjá Sönderjyske hittir Daníel fyrir vinstri bakvörðinn Atla Barkarson.
Í frétt á heimasíðu Sönderjyske kemur fram að Daníel sé 12. Íslendingurinn til að spila fyrir félagið.
„Þetta eru félagaskipti sem við getum verið virkilega stolt af. Við erum mjög ánægð með að Daníel hafi valið Sönderjyske sem næsta áfangastað á sínum ferli. Hann er 27 ára gamall, á besta fótboltaaldri og á góðum stað á ferlinum þar sem hann spilar reglulega og er fastamaður í íslenska landsliðshópnum."
„Með komu Daníels fáum við verulega styrkingu í vörnina. Hann er örvfættur varnarmaður sem getur leyst nokkrar stöður en hann er fyrst og fremst ætlaður í stöðu miðvarðar. Í mörg ár höfum við haft góða reynslu af Íslendingum hér hjá Sönderjyske. Við hlökkum til að sjá hann í leik á Sydbank Park," segir Esben Hansen yfirmaður íþróttamála hjá Sönderjyske.