Sandra Sigurðar á neyðarláni til Grindavíkur (Staðfest)

Sandra mun spila með Grindavík í næstu leikjum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík hefur fengið Söndru Sigurðardóttir á neyðarláni frá Val en þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavík í kvöld.
Sandra tók þá ákvörðun í mars að leggja hanskana á hilluna eftir glæstan feril.
Grindavík er að glíma við vandræði þegar það kemur að markvarðastöðunni en Heiðdís Emma Sigurðardóttir, sem hefur verið aðalmarkvörður liðsins, fékk þungt höfuðhögg með stuttu millibili og verður frá næstu daga.
Chante Sandiford, annar markvörður Grindavíkur, er þá frá vegna veikinda og hefur það haldið henni frá vellinum og því ákvað Grindavík að nýtta sér reglugerð KSÍ sem leyfir félaginu að fá markvörð á neyðarláni.
Sandra hafði ekki ætlað sér að snúa aftur á völlinn en hún ákvað að taka hanskana tímabundið af hillunni til að aðstoða Grindavík og hefur því félagið fengið hana á neyðarláni frá Val. Samningur Söndru við Val gildir fram í nóvember á næsta ári og því kemur hún á láni. Hún spilar sinn fyrsta leik á morgun er liðið mætir Augnabliki í Lengjudeildinni.
„Grindavík fagnar því að fá Söndru til liðs við félagið og erum við þakklát henni fyrir að koma félaginu til aðstoðar í þessari neyð sem skapaðist er meiðsli komu upp hjá markvörðum félagsins. Jafnframt þökkum við Knattspyrnufélaginu Val og KSÍ fyrir gott samstarf í málinu. Bjóðum við því Söndru með stolti velkomna til félagsins,“ segir í yfirlýsingu Grindavíkur.