Tottenham kaupir ítalskan landsliðsmarkvörð (Staðfest)

Mynd: Tottenham

Mynd: Tottenham
Tottenham hefur fengið Guglielmo Vicario í sínar raðir frá ítalska félaginu Empoli. Markvörðurinn skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.
Allt er frágengið nema atvinnuleyfi, en þrátt fyrir það hefur Tottenham opinbert hann sem nýjan leikmann félagsins. Vicario er ítalskur landsliðsmaður og verðu hann númer 13 hjá Spurs.
Hann hefur leikið með Empoli undanfarin ár og var í september í fyrra í fyrsta sinn valinn í ítalska landsliðið og hefur verið í nokkrum hópum síðan.
Tottenham er talið greiða Empoli 15 milljónir punda fyrir Vicario sem er 26 ára gamall. Það verður fróðlegt að sjá hvort Vicario verði fyrsti kostur hjá Ange Postecoglou þegar tímabilið á Englandi byrjar í ágúst.