Fotbolti.net
26.06.23 - 23:14
Ívan Guðjón Baldursson

Sellés að taka við Reading (Staðfest)

Sellés að taka við Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading FC er búið að staðfesta samkomulag við spænska þjálfarann Rubén Sellés. Hann á aðeins eftir að fá samþykkt atvinnuleyfi.

Selles er aðeins 40 ára gamall en hann tekur við Reading eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni með Southampton.

Selles stýrði Southampton í 17 leikjum og tókst liðinu að vinna tvo af fyrstu fjórum, gegn Chelsea og Leicester. Það reyndust einu sigrarnir á stjórnartíð Selles sem þarf að gera betur hjá næsta félagi.

Reading leikur í ensku C-deildinni eftir að hafa fallið úr Championship deildinni. Liðið fékk dæmd sex mínusstig vegna brota á fjármálareglum ensku neðrideildanna og féll útaf þeim, með 44 stig úr 46 leikjum.

Markmiðið hjá Selles verður að koma Reading beint aftur upp í Championship deildina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.