Fotbolti.net
28.06.23 - 16:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Edouard Mendy til Al-Ahli (Staðfest)

Edouard Mendy.

Edouard Mendy.

Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Edouard Mendy er búinn að fá félagaskipti yfir til Sádi-Arabíu. Hann er genginn í raðir Al-Ahli.

Mendy hittir þar fyrir fyrrum liðsfélaga sinn í Chelsea, Kalidou Koulibaly, sem fékk félagaskipti þangað fyrir stuttu.
Sjá einnig:
Chelsea þurfti að útskýra áhugann frá Sádi-Arabíu

Það er talið að Al-Ahli borgi um 16 milljónir punda fyrir Mendy.

Samningur Mendy í Sádí-Arabíu mun gilda til ársins 2026 og mun hann fá ansi vel borgað.

Mendy er 31 árs gamall markvörður sem gekk í raðir Chelsea frá Rennes sumarið 2020. Hann hjálpaði liðinu að vinna Meistaradeildina á sínu fyrsta tímabili í London en var að mestu varamarkvörður á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.