Liverpool lánar Rhys Williams til Aberdeen (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rhys Williams varnarmaður Liverpool fer til Aberdeen á eins árs lánssamningi.
Þessi 22 ára leikmaður hefur verið hjá Liverpool frá því að hann var barn og hefur hefur spilað nítján aðalliðsleiki. Þeir komu allir 2020-21 þegar hann hjálpaði liðinu, sem var í miklum meiðslavandræðum, að ná Meistaradeildarsæti.

„Ég er afskaplega ánægður með að vera hérna," sagði Williams við heimasíðu Aberdeen.
„Það er ýmislegt sem ég hlakka til, sérstaklega að taka þátt í Evrópukeppni með liðinu. Ég get ekki beðið eftir því að sýna öllum hvað ég get."
Aberdeen hafnaði í þriðja sæti skosku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.