Cloe Lacasse til Arsenal (Staðfest)

Cloe Lacasse í leik með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cloe Lacasse í leik með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cloe Lacasse er formlega gengin í raðir Arsenal. Cloe raðaði inn mörkunum með ÍBV hér á landi áður en hún skipti yfir til Benfica árið 2019. Hún var einn öflugasti leikmaður efstu deildar kvenna áður en hún fór út.
Á þeim tíma sem hún spilaði hérna þá fékk hún íslenskan ríkisborgararétt en hún gat ekki spilað með íslenska landsliðinu þar sem hún uppfyllti ekki kröfur FIFA til þess að spila með Íslandi. Í fyrra byrjaði hún svo að spila með landsliði Kanada.
Hún er í kanadíska landsliðshópnum sem er að fara að keppa á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.

„Hún er sannur markaskorari og kemur með aðra vídd í sóknarleik okkar," segir Jonas Eidevall þjálfari Arsenal en Lacasse skoraði alls 102 mörk í 131 leik fyrir portúgalska félagið Benfica.
„Ég er tilbúin líkamlega og andlega í að láta til mín taka hér og vinna titla," segir hin 29 ára gamla Lacasse.
Hún er annar leikmaðurinn sem kvennalið Arsenal fær til sín í sumar en sænski miðvörðurinn Amanda Ilestedt kom frá Paris St-Germain.

Welcome the Arsenal family, @cloe_lacasse ?? pic.twitter.com/GQcQfIWN8N
— Arsenal Women (@ArsenalWFC) June 29, 2023