Fyrirliðinn framlengir við Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Írski bakvörðurinn Seamus Coleman framlengdi í dag samning sinn við Everton til 2024.
Coleman er langreyndasti leikmaðurinn í hópnum hjá Everton en hann hefur verið á mála hjá félaginu frá 2009.
Varnarmaðurinn er 34 ára gamall og er bæði fyrirliði Everton og írska landsliðsins.
Hann á yfir 400 leiki fyrir Everton og 28 mörk en samningur hans við félagið átti að renna út á morgun.
Félagið hefur nú tilkynnt að hann verður áfram næsta árið en hann skrifaði undir samninginn í dag.
Coleman er því á leið inn í sitt fimmtánda tímabil með Everton.

Seamus Coleman will extend his long-serving and hugely-respected #EFC playing career into a 15th season! ????????
— Everton (@Everton) June 29, 2023