Fotbolti.net
27.06.23 - 17:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kovacic til Man City (Staðfest) - „Besta lið í heimi"

Kovacic til Man City (Staðfest) - „Besta lið í heimi"
Canon

Mynd: Man City

Manchester City hefur staðfest komu Mateo Kovacic til félagsins en það kaupir hann frá Chelsea. Króatíski landsliðsmaðurinn tekur treyju númer 8 hjá City og tekur við því númeri af Ilkay Gundogan sem samdi við Barcelona á dögunum.

Kovacic er 29 ára gamall miðjumaður sem skrifar undir fjögurra ára samning við ensku meistarana.
Kaupverðið er 25 milljónir punda og svo fimm milljónir til viðbótar í árangurstengdum gjöldum.

Kovacic hefur verið á mála hjá Chelsea í fimm ár, kom fyrst á láni frá Real en samdi svo við félagið 2019. Hann hefur einnig leikið með Dinamo Zagreb og Inter á sínum ferli.

Hann á að baki 95 landsleiki og hefur í þeim skorað fimm mörk. Alls lék hann 221 leik fyrri Chelsea og skoraði sex mörk. Hann vann Meistaradeildina, Evrópudeildina og heimsmeistarakeppni félagsliða hjá Chelsea og var valinn leikmaður ársins tímabilið 2019/20.

„Þetta er snilldar skref fyrir mig og ég get ekki beðið eftir því að byrja með City. Fyrir mér er þetta besta lið í heimi. Allir geta séð titlana sem liðið hefur unnið, en þeir eru líka besta fótboltaliðið. Það er draumur fyrir alla fótboltamenn að ganga inn í þennan hóp," sagði Kovacici m.a. við undirskrift.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.