Fotbolti.net
28.06.23 - 19:17
Brynjar Ingi Erluson

Kai Havertz til Arsenal (Staðfest)

Kai Havertz

Kai Havertz

Canon

Mynd: Arsenal

Arsenal hefur gengið frá kaupum á þýska landsliðsmanninum Kai Havertz en hann kemur frá nágrönnum þeirra í Chelsea. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arsenal í kvöld.
Arsenal og Chelsea komust að samkomulagi á dögunum um kaupverð en félagið greiðir 65 milljónir punda fyrir Havertz.

Þjóðverjinn gekk í raðir Chelsea frá Bayer Leverkusen fyrir þremur árum og vann Meistaradeild Evrópu á fyrsta tímabili sínu, ásamt því að vinna Ofurbikar Evrópu og HM félagsliða.

Havertz kvaddi stuðningsmenn Chelsea með yfirlýsingu fyrir nokkrum mínútum áður en Arsenal staðfesti félagaskiptin á heimasíðu sinni. Hann skrifaði undir langtímasamning.

Þetta eru fyrstu kaup Arsenal í sumar en félagið er einnig að ganga frá viðræðum við West Ham um Declan Rice og þá er Jurrien Timber á leið til félagsins frá Ajax. Romeo Lavia, leikmaður Southampton, er þá orðaður við félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.