Fabio Carvalho í Leipzig (Staðfest)

Fabio Carvalho.

Mynd: Getty Images

Fabio Carvalho.

Mynd: Getty Images
Fabio Carvalho hefur verið lánaður frá Liverpool til RB Leipzig í Þýskalandi í eitt tímabil. Þýska félagið var að staðfesta þessi félagaskipti.
Carvalho kom til Liverpool frá Fulham á síðasta ári en fékk lítið að spreyta sig á fyrsta tímabili sínu.
Hann kom við sögu í 21 leik í öllum keppnum og skoraði þrjú mörk en í heildina lék hann aðeins 640 mínútur.
Leipzig vildi kaupa hann í sumar en Liverpool tók það ekki í mál. Hann fer á láni en kaupákvæði er ekki innifalið í þessum lánssamningi.
Liverpool er mögulega svo að kaupa leikmann frá Leipzig en félagið er í viðræðum um kaup á miðjumanninum Dominik Szoboszlai.