Tottenham kaupir Maddison frá Leicester (Staðfest)

James Maddison er mættur í treyju Tottenham

Mynd: Tottenham

Tottenham Hotspur hefur gengið frá kaupum á James Maddison frá Leicester.
Enski landsliðsmaðurinn var einn af eftirsóttustu leikmönnum sumarsins en Tottenham var í baráttu við Newcastle United og þá hafði Arsenal einnig áhuga.
Tottenham komst á dögunum að samkomulagi við Leicester um kaup á Maddison og í dag voru kaupin staðfest.
Félagið greiðir 40 milljónir punda og skrifaði hann undir langtímasamning.
Maddison hefur verið með bestu leikmönnum úrvalsdeildarinnar síðustu ár en hann kom til Leicester frá Norwich árið 2018.
Leicester féll niður í B-deildina eftir þetta tímabil og var þá ljóst að hann yrði ekki lengur hjá félaginu.

Welcome, @Madders10! ???? pic.twitter.com/Jcm3Z1HEMU
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) June 28, 2023