Yarmolenko snýr aftur til Kiev (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Andriy Yarmolenko er snúinn aftur til úkraínska félagsins Dynamo Kiev eftir sex ára fjarveru. Yarmolenko er 33 ára kantmaður sem ber fyrirliðabandið hjá úkraínska landsliðinu.
Hann lék með Dynamo Kiev á árunum 2008-2017 og vakti athygli Dortmund sem keypti hann.
Næsta stopp var West Ham þar sem hann var í fjögur ár og í fyrra skipti hann yfir til Al Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Hjá West Ham lék hann 78 leiki og skoraði þrettán mörk. Hann missti úr stóran hluta fyrsta tímabils síns vegna hásinaslita. Yarmolenko skrifar undir tveggja ára samning við Kiev.
Á ferlinum hefur hann spilað 523 leiki með félagsliðum sínum og 115 landsleiki. Alls hefur hann skorað 178 mörk fyrir félagslið og 45 fyrir landsliðið.