Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.06.2023, 15:00

Ungur kóreskur varnarmaður til Brentford (Staðfest)

Brentford hefur fengið til sín átján ára varnarmann frá Suður-Kóreu, Ji-soo Kim, sem hefur gert fjögurra ára samning. Leikmaðurinn fer til að byrja með í varaliðið hjá Brentford. Kim kemur frá Seongnam í heimalandinu en hann lék nítján leiki fyrir félagið á sínu fyrsta tímabili með aðalliðinu.

FRÉTTIR26.06.2023, 11:28

Modric framlengdi við Real Madrid (Staðfest)

Luka Modric hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Real Madrid og er nú bundinn félaginu til sumarsins 2024. Modric er 37 ára og hefur eins og svo margir verið orðaður við Sádi-arabísku deildina.

FRÉTTIR26.06.2023, 11:13

Frágengið að Havertz fer til Arsenal

Þýski blaðamaðurinn Florian Plettenberg sem vinnur hjá Sky í Þýskalandi greinir frá því rétt í þessu að það sé frágengið að Kai Havertz sé á leið til Arsenal frá Chelsea. Hann segir að Havertz skrifi undir fimm ára samning og kaupverðið sé 75 milljónir evra þar sem bónusgreiðslur séu með inni í dæminu.

FRÉTTIR26.06.2023, 09:45

Robbie Keane orðinn stjóri Maccabi Tel Aviv (Staðfest)

Maccabi Tel Aviv, sigursælasta félagslið Ísrael, hefur staðfest Robbie Keane sem nýjan stjóra félagsins en hann gerir tveggja ára samning. Liðið hafnaði í þriðja sæti á liðnu tímabili. Keane hefur starfað sem aðstoðarstjóri undanfarin ár, hjá Middlesbrough og írska landsliðinu og þá var hann í þjálfarateymi Sam Allardyce hjá Leeds á lokakafla nýliðins tímabils.

FRÉTTIR26.06.2023, 08:07

Gundogan til Barcelona (Staðfest)

Manchester City hefur staðfest að Ilkay Gundogan mun yfirgefa félagið um mánaðamótin og ganga í raðir Barcelona á frjálsri sölu.

FRÉTTIR23.06.2023, 18:43

Ruben Neves til Al-Hilal á metfé (Staðfest)

<p>Sádí-arabíska félagið Al-Hilal er búið að ganga frá kaupum á portúgalska miðjumanninum Ruben Neves fyrir um 47 milljónir punda, eða 55 milljónir evra.</p>

FRÉTTIR23.06.2023, 18:00

Zidane Iqbal farinn frá Man Utd (Staðfest)

<p>Manchester United hefur staðfest brottför Zidane Iqbal frá félaginu en ekki er tekið fram hvort leikmaðurinn hafi verið seldur eða hvort aðilar hafi einfaldlega komist að samkomulagi um starfslok.</p>

FRÉTTIR23.06.2023, 16:54

Benítez tekinn við Celta Vigo (Staðfest)

Celta Vigo hefur ráðið Rafa Benítez sem nýjan stjóra félagsins. Frá þessu greinir félagið í dag. Benítez er 63 ára Spánverji sem hefur stýrt liðum á Englandi, Spáni, Ítalíu og í Kína á sínum ferli. Hann er þekktastur fyrir sín störf hjá Liverpool og þá náði hann frábærum árangri hjá Valencia.

FRÉTTIR23.06.2023, 15:12

Burnley kaupir O'Shea (Staðfest)

Burnley hefur fest kaup á írska landsliðsmanninum Dara O'Shea frá West Brom. Varnarmaðurinn er talinn kosta um sjö milljónir punda. O'Shea skrifar undir fjögurra ára samning við Burnley sem vann Championship deildina í vetur og verður því í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

FRÉTTIR23.06.2023, 10:50

Guerreiro til Bayern á frjálsri sölu (Staðfest)

Portúgalski bakvörðurinn Raphael Guerreiro hefur formlega verið kynntur sem nýr leikmaður hjá þýska stórveldinu Bayern München. Hann kemur til Bayern á frjálsri sölu frá helstu keppinautunum í Borussia Dortmund. Þetta er ekki í fyrsta sinn þar sem leikmaður fer frítt frá Dortmund til Bayern en á sínum tíma fóru báðir Mario Götze og Robert Lewandowski á milli á frjálsri sölu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.