Gundogan til Barcelona (Staðfest)

Gundogan kvaddi City með því að lyfta Meistaradeildarbikarnum.

Mynd: EPA

Manchester City hefur staðfest að Ilkay Gundogan mun yfirgefa félagið um mánaðamótin og ganga í raðir Barcelona á frjálsri sölu.
Gundogan er 32 ára og var boðinn nýr samningur hjá City en ákvað frekar að samþykkja þriggja ára samning við Spánarmeistarana.
Pep Guardiola vildi halda Þjóðverjanum sem var lykilhlekkur í liði City sem vann þrennuna mögnuðu á þessu tímabili. Hann skoraði tvennu í 2-1 sigrinum gegn Manchester United í úrslitum FA-bikarsins.
Gundogan spilaði 51 leik á liðnu tímabili og skoraði ellefu mörk. Hann hefur verið hjá City síðan 2016 en þá kom hann frá Borussia Dortmund.
Á sjö árum hjá félaginu vann hann fjórtán titla og var gerður að fyrirliða fyrir ári síðan.
Brotthvarf Gundogan kemur eftir fréttir um að City hefði komist að samkomulagi við Chelsea um kaup á króatíska miðjumanninum Mateo Kovacic fyrir 30 milljónir punda.
Uppfært: Barcelona hefur nú einnig staðfest samkomulag við Gundogan og tilkynnt að samningur hans sé með 400 milljóna evra riftunarákvæði.

Thank you, @IlkayGuendogan ???????? pic.twitter.com/7cLYERLSZN
— Manchester City (@ManCity) June 26, 2023
????? @IlkayGuendogan is CULER! pic.twitter.com/DrbOOIMSLe
— FC Barcelona (@FCBarcelona) June 26, 2023

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Heimasíða Man City

Mynd: EPA

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA