
Busquets til Inter Miami (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Inter Miami er svo gott sem búið að staðfesta félagsskipti Sergio Busquets til sín frá Barcelona.
Busquets er talinn gera tveggja ára samning við Inter þar sem hann mun spila aftur með stórvini sínum og fyrrum liðsfélaga Lionel Messi.
Inter hefur ekki gengið sérlega vel frá stofnun félagsins fyrir þremur árum, þrátt fyrir að hafa verið með Gonzalo Higuain fremstan í flokki fyrstu tvö árin. David Beckham er meðal eigenda félagsins og verður áhugavert að fylgjast með hvort stórstjörnur á borð við Busquets og Messi geti breytt gengi liðsins.
Busquets verður 35 ára í sumar en er ennþá ótrúlega góður fótboltamaður. Það er ekki af ástæðulausu sem Xavi, þjálfari Barcelona, vildi ólmur semja aftur við Busquets í sumar.
Leikmaðurinn vildi prófa nýja áskorun og fá að spila stærra hlutverk, þrátt fyrir að hafa tekið þátt í 42 leikjum á nýliðnu tímabili er Barca varð Spánarmeistari í fyrsta sinn síðan 2019.
Busquets hefur unnið stærstu titla sem eru í boði með Spáni og Barca og verður hans minnst sem goðsagnar.
Jordi Alba, vinstri bakvörður Barcelona, hefur einnig verið orðaður við félagsskipti til Inter Miami.


